04.09.2008 18:41:58 / solla
»
17.06.2008 23:06:45 / solla
KOMNAR MYNDIR HÉR FRÁ TÓNLEIKUNUM!

Margt hefur nú á daga mína drifið síðan síðast!
Væntanlegur er nýr kjóll frá Krown* sem verður til sölu í Brúðarkjólaleigu Dóru.
Einnig fórum við Ósk vinkona á algjörlega ÓGLEYMANLEGA tónleika með James Blunt í nýju Laugardagshöllinni

Set seinna inn link á myndasíðuna hennar Óskar, hún tók helling af skemmtilegum myndum. Það voru eingöngu sæti og vorum við á fremsta bekk til hliðar...sáum ekkert! Eftir rúma klst af öskrum og látum hjá okkur til að reynað lokka gæjann náttúrlega í áttina til okkar
þá sleppti múgurinn sér lausum og stukku allir upp að sviðinu (en þar hafði verið svaðaleg öryggisgæsla og mátti enginn koma nálægt).
Svo þar vorum við komnar,,,í beinni snertingu við goðið! stóðum beint fyrir framan sviðið, sæti A+ hehe fyrir aðeins 5.900 kr.
Sko ALLS ekki leiðinlegt það. Hvet ég alla til að lesa dóma sem tónleikarnir fengu, því þeir voru mjög góðir hehe.
Síðan fórum við Hafþór norður á Akureyri á Enduro keppni sem Hafþór tók þátt í.
Stóð hann sig þar eins og hetja og var rosa fjör.
HÉR getiði séð myndir þaðan


Svo skelltum við okkur í dag, 17.júní niður í miðbæ í veðurblíðunni.
Þar var einnig smellt af nokkrum myndum sem þið getið séð HÉR.
Fyndið, eitthvað voru veðurguðirnir ósáttir við þessa hátíð okkar, því vindurinn sleit fánann frá flaggstönginni niður í bæ..hehe. Lögreglan og slökkviliðið var ræst uppá þak og björgunartilraun skilaði árangri,,,,fánanum var náð niður og blakti fallega það sem eftir var þessa þjóðhátíðardag okkar.

Einnig eru myndir af nýjum kjól, leggings og klút


Mega töff súperman-demanta leggings
Koma betri myndir af kjólnum seinna 
Kveð að sinni
Solla
»
27.05.2008 21:34:45 / solla
Síðustu helgi skelltum við okkur norður í Skagafjörðinn í útskrift Söndru systur frá Háskólanum á Hólum.
Haldiði að mín hafi ekki bara dúxað?!? ótrúlega stolt af stóru systur sinni 
Eftir útskriftina var haldið í júróvision partý til Pálínar, vinkonu Söndru. Jii hvað það var gaman þar. Dansað eins og á Gauknum gamla í denn....svaðalegt stuð.
HÉR getið þið séð allar myndir frá ferðinni.
Myndir af leggings, kjól og nýjum Krown* klút koma í vikunni. En einnig í myndunum úr partýi Pálínu, ég var í því þar 
Kveðja
Solla
»
14.05.2008 20:04:19 / solla
Jeijj mín byrjar í nýju vinnunni á morgun! Svo fer allt á fullt hjá Krown*
Þessi kjóll kemur fyrir helgi

Svo byrja ég á þessum "demanta" leggings og stórri peysu.
Væntanlegt fyrir sumarið er:
bolakjóll
kokteilkjóll
leggings
víð peysa
þunn kápa með kínaermum
stutt poncho
o.fl. klútar
hlakka svo til, er alveg komin með kláða í fingurgómana hehe.
Vildi bara láta ykkur vita, svo verið á skotskónnum og tilbúin með veskin
mohahaha
Tjá
S
»
09.05.2008 12:48:02 / solla
Já mín var komin með smá leið á ljósa hárinu, og litaði það aftur dökkt. Þetta er ekki alveg eins og minn eigin hárlitur, en þennan get ég látið bara vaxa úr og fengið minn svarta aftur!
Svo í gær gengum við Sandra í göngunni "Göngum gegn slysum".
Veðrið var náttúrulega bara brandari...vorum að stikkna á leiðinni úr hita.
Síðan var horft á úrslitaþáttinn í Hæðinni.....og mín sátt við sína menn. Hélt alltaf með Begga og Pacasi. Jeijjj
Jams...nóg í bili.
Kv.
Solla
»
24.03.2008 11:01:09 / solla
Gleðilega páska öll sömul, vonandi höfðuð þið það náðugt í gær og átuð ekki of mikið af páska eggjum 
Við hjónakornin skelltum okkur í sund í hádeginu í gær niður í Laugar. Þar var nú ótrúlega margt fólk fannst mér
Virkilega notalegt að eyða frídeginum í heita pottinum hehe.
Seinnipartinn fórum við í mat í Álfatúnið, þar sem var fullt af fólki og virkilega skemmtilegt og góður matur.
Ég skellti í eitt pils fyrir páska og hér koma nokkrar myndir af því. Það er úr flaueli og með háu stroffi, sem hægt er að krupma svo niður.
»
Síður:
1 2 3 ...
29